verður maður ekki alltaf að gera málverk af konu sinni annað slagið, ég klikkaði reyndar að gefa henni eithvað á mæðradaginn síðast, hún má bara eiga þessa sem skaðabætur.
olía á striga
Ég er myndlistamaður og myndmenntakennari og kenni bæði í grunnskóla og Myndlistaskólanum í Reykjavík, þannig að nemendahópur minn er allt frá 6 ára upp í 60 plús.
Í þessu bloggi ætla ég mér að henda við og við inn, samhengislaust og án ábyrgðar nýjum og gömlum málverkum, myndskreytingum og teikningum.